09.01.2020 kl 21:45
Kveikt var í stórri ruslatunnu við Leikhús Vestmannaeyja núna á níunda tímanum í kvöld.
Samkvæmt lögreglu var það flugeldi sem kveikti í ruslatunninni en engan sakaði og greiðilega tókst að slökkva eldinn. Lögreglan búin að ná góðum tökum á eldinum þegar slökkvuliðið mætti á svæðið en þeir kláruðu svo verkið.
Að sögn Friðriks Páls slökkviliðstjóra þá var ruslatunnan upp við steyptan vegg og ekki nálægt neinu sem var eldfimt sem betur fór en það voru þarna tveir bílar og gluggi sem voru nokkuð nálægt.
Lögreglan segir að tveir ungir drengir séu grunaðir og liggur játning þeirra nánast fyrir.