Krónan eykur vöruúrval í Vestmannaeyjum
Krónan er alltaf að leita leiða til að auka vöruúrval og þjónustu á landsbyggðinni. Nýlega hóf hún að senda Tokyo Sushi bakka til Vestmannaeyja á föstudögum og hafa viðtökur verið vonum framar.
„Það er virkilega gaman að sjá hvað viðskiptavinir okkar hér í Vestmannaeyjum hafa tekið vel í að geta fengið Tokyo Sushi í versluninni. Eftirspurnin er greinilega til staðar því bakkarnir í fyrstu sendingunni kláruðust á innan við tveimur klukkutímum. Við erum sífellt að skoða úrvalið og ef viðskiptavinir sakna einhverra bita þá hvetjum við þá að koma óskum sínum á framfæri við okkur,“ segir Ólafur Björgvin Jóhannesson, verslunarstjóri Krónunnar í Vestmannaeyjum.
Krónan leggur sig fram við að vera í virku samtali við viðskiptavini sína, sem oft eru með óskir um ákveðnar vörur. Viðskiptavinum í Vestmannaeyjum, sem vilja koma óskum sínum á framfæri, er bent á að koma þeim til Ólafs verslunarstjóra.


