Handknattleikskonan Kristrún Ósk Hlynsdóttir hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍBV. Félagið greindi frá samkomulaginu á vef sínum.
Kristrún sneri aftur á handboltavöllinn á síðasta tímabili eftir að hafa verið frá keppni um töluvert skeið. Hún lét fljótt að sér kveða og skilaði mikilvægu framlagi fyrir Eyjaliðið.
Meðal annars skoraði Kristrún þýðingarmikil mörk í undanúrslitaeinvígi ÍBV og Hauka.
ÍBV fagnar því að hafa tryggt sér krafta Kristrúnar áfram og segist hlakka til áframhaldandi samstarfs við hana.

