Kap ve Tigull

Kristján Þór undirritar reglugerð um veiðar á loðnu

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í gær grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Alls heimilar reglugerðin veiðar íslenskra skipa á allt að 662.064 tonnum sem gefur væntingar um að komandi vertíð verði sú stærsta í tæp 20 ár.

Nýverið kynnti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf fyrir loðnuveiðar vertíðarinnar 2021-2022 upp á 904.200 tonn. Í samræmi við alþjóðlega samninga fær Ísland 80% þess magns eftir að tekið hefur verið tillit til tvíhliðasamninga við önnur ríki. Aflaverðmæti þessarar vertíðar er áætlað um 50 milljarðar og hefjast veiðar 15. október næstkomandi.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Það er mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að undirrita reglugerð sem gefur væntingar um að komandi vertíð verði sú stærsta í um tvo áratugi. Þetta eru frábærar fréttir fyrir einstaka byggðir í landinu en um leið samfélagið allt enda skapar þetta miklar tekjur fyrir þjóðarbúið og eykur líkur á að okkur takist að vaxa enn hraðar út úr kór¬ónuveirukrepp¬unni á næstu mánuðum

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is