02.07.2020
Félagsfundur Lögreglufélags Vestmannaeyja samþykkti á mánudaginn var ályktun þar sem segir að félagið hvetji fjármálaráðherra til að semja nú þegar við Landssamband lögreglumanna.
„Vakin er athygli á því að lögreglan er ein af grunnstoðum samfélagsins og hefur það komið berlega í ljós í Covid-19 ástandinu hversu þýðingarmikil stétt lögreglumanna er. Það er ótækt að lögreglumenn hafi verið samningslausir í á annað ár og því krefjumst við þess að fjármálaráðherra gangi frá samningum við Landssamband lögreglumanna nú þegar.” segir í ályktun Lögreglufélags Vestmannaeyja.