Hráefni:
1000 g marsipan (möndludeig)
400 g flórsykur
2 eggjahvítur (ca 60 gr)
flórsykur til að vinna deigið með
Sykurbráð (glassúr)
250 g flórsykur
1 eggjahvíta (30 g)
1 tsk ferskur sítrónusafi
Karamellubráð til að setja saman hringina og festa skrauti utan á kökuna.
100 g strásykur
2-3 tsk hveiti
eða dökkt súkkulaði brætt í vatnsbaði
eða sykurbráð úr 1 eggjahvítu og 220 g af flórsykri
Konfekt, ávextir eða annað til skreytinga eftir smekk.
Aðferð:
Marsipanið rifið eða skorið niður í bita og hnoðað (í hræri- eða matvinnsluvél) með flórsykrinum þangað til það blandast vel saman. Þá er eggjahvítunum bætt saman við í tvennu lagi.
Hnoðað þangað til massinn verður þéttur og áferðarfallegur.
Gott að láta deigið standa í kæli í 3-4 klst.
Stráið flórsykri á borð og skiptið deiginu í nokkra hluta og úr þeim unnar lengjur þannig:
Lengjurnar eru hafðar ca 1,5 – 2 cm þykkar og lengdin mæld þannig að minnsti hringur er gerður úr 8 cm síðan er bætt við hverja lengju 3 cm og áfram þannig þangað til æskilegum fjölda er náð.
Þetta deig dugar í ca 16-18 hringi.
Nú er tvennt í stöðunni, annað hvort að raða hringjunum á bökunarplötu klædda bökunarpappír eða setja hringina í kransakökuform. En þá fer stærð þeirra að sjálfsögðu eftir stærð formanna.
Bakað við 225° hita í 8-10 mín. eða þangað til hringirnir hafa tekið gullinbrúnan lit.
Varast skal að baka þá of lengi. Síðan eru þeir lagðir saman hvort heldur er með karamellubráð eða bræddu súkkulaði eða sykurbráð.
Karamellubráð
Hveitið er blandað saman við sykurinn og brætt á pönnu við vægan hita.
Nota skal eins lítið og mögulegt er af sykri á milli hringja.
Sykurbráð (glassúr)
Flórsykur, eggjahvíta og sítrónusafi er hrært vel saman þangað til myndast þykk og jöfn sykurbráð.
Sett í plastpoka sem gert er lítið gat á eitt hornið eða búið til kramahús úr t.d. bökunarpappir.
Hringirnir skreyttir með zik-zak munstri áður en þeir eru lagðir saman.
Nokkur góð ráð:
Smyrjið bökunarform með smávegis af smjörlíki og eins er gott að setja ögn af raspi á botninn.
Notið reglustiku til að mæla lengdina og beittan hníf til að skera deigið sundur.
Forsíðumynd fengin að láni frá: icelandweddingsandhoneymoons.com