10.02.2020
Tígull fékk að fara með Pétri Steingríms í smá bryggjurúnt í dag við gefum honum orðið.
Það er búið að vera helv… kalt í dag, norðan skíta kaldi en ég lét mig hafa það og klæddi mig eftir veðrinu og gekk bryggjurúntinn.
Það var nú frekar rólegt yfir bryggjulífinu, Herjólfur bundinn við bryggju og menn að bíða eftir því hvort það verður fært í Landeyjahöfn kl.17:00 annars fer hann í Þorlákshöfn, hann sigldi eitthvað upp í sand í morgun.
Loðnuflotinn liggur bundinn við bryggju en ég veit að það er allt klárt ef og þegar ræsið kemur, ég hef trú á þessu og loðnusjómennirnir líka.
Það var verið að kara Breka og gera hann klárann á sjó, þeir rótfiska þar um borð.
Það var líka gaman að fylgjast með fuglalífinu á höfninni og þá sérstaklega inni í „Pitt“ það beið máfurinn og æðarfuglinn eftir að því að smáfiskurinn gæfi sig aftur.
Haraldur Sverrisson, útgerðarmaður á Steðja var búinn að „taka upp“ á Skipasand og var í botnhreinsun.
Svo eru þeir að gera nýjan veg upp á Eiðið, hann verður nánast undir Neðri Kleifum, einhver sagði að miðjuvegurinn færi í burtu og er það bara allt í lagi.
Kveðja á ykkur Pétur Steingrímsson
Hvort verður það Landeyahöfn eða Þorlákshöfn kl.17:00
Yfir höfnina frá Friðarhöfn að Básaskersbryggju
Gaman að fylgjast með fuglalífinu á höfninni.
Steðji VE. botnhreinsaður. útgerðarmaðurinn vel gallaður í kuldanum.
Breki VE. gerður klár á sjóinn., held að hann sé með um 500 kör um borð.
Ísleifur VE.
Allt klárt hjá Vinnslustöðinni fyrir góða vertíð. Hafsalt í pokum í tugavís raðað á bryggjuna norðan við stöðina.
Við Skipalyftukantinn. Bergur „Bryggjublómið fagra“ gamli Víkingur og Huginn fjærst.
Stefnið á Huginn VE. hér nær, Kapin og ísleifur fjær.
Kapin og Ísleifur bundin við bryggju og bíða eftir ræsi á loðnuna. Bergur þarna fjær við Skipalyftuviðlegukantinn.
Allt klárt hjá Heimaey VE. og þar bíða menn og örugglega orðnir óþreyjufullir að komast af stað.