Fjölskylda: Maðurinn minn heitir Carl Eliassen og saman eigum við einn strák hann Atlas Neo (5 ára)
Hvaða hefðir tíðkast í fjölskyldunni í kringum jólin? Við hlustum mikið á jólatónlist og horfum á jólamyndir. Gerum piparkökuhús og að sjálfsögðu stendur jólasveinninn
(skóinn útí glugga) alltaf uppúr hjá okkar manni. Þar sem við búum ekki á Íslandi þá höldum við alltaf í hefðina að seta skóinn útí glugga 13 dögum fyrir jól.
Hvenær byrjið þið að setja upp jólaljós? Í byrjun desember þá byrjun við alltaf að gera jólalegt í kringum okkur hvar sem við erum i heiminum.
Hvenær er jólatréð skreytt? Við erum ekki með neinn sérstakan dag.
Er mikill munur á hefðum núna og þegar þú varst lítil og hvað þá helst? Já alveg ótrúlega mikill munur. Ég sjálf hef ekki verðið á Íslandi í 7 ár og aldrei eftir að ég varð móðir. Við erum búin að vera í Kína, Thailandi og Spáni síðastliðin ár yfir jólin og í ár verðum við Noregi í skíðaferð með tengdafjölskyldu minni. Ég sjálf á yndislegar minningar út minni barnæsku yfir jólin. Það er enginn betri en hún mamma mín i því að skreyta og baka. Þau hjónin á Kirkjubæjarbraut 1 sáu til þess að á aðfangadag væri purusteik með öllu tilheyrandi komið á borðið rétt fyrir 18:00, búið að baða allt liðið og allir klæddir í sitt fínasta dress (með tilheyrandi stressi) en núna erum við yfirleitt bara við 3 lengst útí heimi en við sjáum alltaf til þess að við borðum góðan mat, spilum og opnum pakka.
Er eitthvað sem má alls ekki sleppa í kringum jólahátíðina? Eina sem má ekki sleppa er góða skapið. Og njótum þess að vera í kringum fólk sem við elskum.