05.12.2020
Nú er komin desember – mánuðurinn sem að flestir fara að huga að smákökubakstri. Við fengum til okkar tvær uppskriftir og má geta þess að önnur er fjölskylduuppskrift síðan 1938.
Kókos súkkulaðikökur (hnoðaðar)
Tvöföld uppskrift passar í stóra Macintoshdós
Hráefni:
400 g hveiti
200 g kókosmjöl
400 g smjörlíki (lint)
2 egg
1 tsk lyftiduft
7 msk kakó
3 tsk vanilludropar
300 g sykur
Aðferð:
Öllu blandað saman í skál og hnoðað í hrærivél. Geymt í ískáp yfir nótt. Taka smá slatta í einu, hnoða kúlur, dýfa í sykur og setja á plötu.
Þetta er bakað á blæstri á 175-180° í 6-8 mínútur eða á undir/yfirhita á 200° í 6-8 mínútur. Einnig er hægt að blanda muldum möndlum saman við sykurinn og setja ofan á kökurnar.
Súkkulaðibitakökur
Hráefni:
2 bollar púðursykur
4 bollar kornflex – mulið
2 bollar kókosmjöl
100 g saxað suðusúkkulaði
100 g möndluflögur (má sleppa)
1 tsk vanilludropar
4 eggjahvítur
Aðferð:
Þeyta púðursykur og eggjahvítur vel saman, þangað til þetta er orðið ljóst og létt. Kornflexi, kókosmjöli, suðusúkkulaði, vanilludropum og möndluflögum hrært út í með sleif.
Sett á plötu með teskeiðum. Fletjast vel út. Bakast á blæstri við 150-175° í 10 mínútur.

