Ofnbakað grænmeti
Hráefni:
2 paprikur
1-2 sætar kartöflur
flysjaðar og skornar í teninga
3 kartöflur, skornar í bita
1 rauðlaukur, afhýddur og
skorinn í fernt
3 gulrætur, skornar í bita
1 msk timjan
2 msk rósmarín
1/4 bolli ólífuolía
2 msk balsamic-edik
salt og ferskur svartur pipar,
að þínum smekk.
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°.
Blandið öllu grænmetinu saman.
Í aðra skál setjið timjan, rósmarín, olíu, edik, salt og pipar, blandið vel.
Hellið krydd blöndunni yfir græn-metið og hrærið öllu vel saman.
Dreifið grænmetinu vel á bökunar plötu, bakið í 30-40 mín, þar til grænmetið er orðið meyrt í gegn og hefur tekið lit.
Hrærið á ca. 10 mín fresti.
Kjúklingaréttur
Hráefni:
4-5 kjúklingabringur
4 stk hvítlauksrif (smátt skorinn)
1/2 l matreiðslurjómi
1 stk piparostur
1 krukka rautt pestó
2 msk soyasósa
5-10 dropar tabasco sósa
Aðferð:
Setjið um 1/2-1 msk af smjöri og léttsteikið hvítlaukinn.
Bætið þá matreiðslurjóma, piparosti, rauðu pestó, soyasósu og tabasco sósu saman við, bræðið ostinn og smakkið sósuna til.
Brúnið kjúklingabringurnar á annarri pönnu, á hvorri hlið og setjið síðan í eldfast mót.
Hellið sósunni yfir bringurnar og látið inn í 175°c heitan ofn í um hálftíma eða þar til kjúklingabringurnar eru fulleldaðar.
Gott er að hafa ferskt salat með.