22.05.2020
Í hádeginu í dag kíktu Kiwanisfélagar við í Hamarsskóla en á hverju ári mæta þeir og afhenda börnum í 1.bekk hjálma. Eimskipafélag Íslands og Kiwanishreyfingin hafa frá árinu 2004 fært öllum börnum í fyrsta bekk hlífðarhjálm að gjöf. Þetta eru um 5.000 hjálmar á ári yfir landið. Það voru um 62 nemendur sem fengu afhenda hjálma í dag.
Slysavarnarfélagið Eykyndill og Lögreglan voru einnig á staðnum.
Í dag er hjóladagur GRV og eins og sjá má á mynbandinu þá er búið að gera þrautir á svæðinu hjá Hamarsskóla.