
Það var líf og fjör í Grunnskóla Vestmannaeyja þegar Kiwanisfélagar mættu og afhentu nemendum endursskínsborða. Allir nemendur fengu endurskínsborða, allt frá Víkinni (5 ára deildin) og upp í 10. bekk eða rúmlega 600 nemendur. “ Það voru allir ánægðir með þennan glaðning og elstu nemendurnir ekki síður. Að sjálfsögðu fengu kennararnir líka enda fyrirmyndir barnanna“ segir Sigvard Hammer forseti Kiwanis. Flott framtak hjá þeim Kiwanismönnum og nú ættu öll börnin í skólanum að vera sýnileg í dimmunni.