KFS sigraði Dalvík/Reyni á Hásteinsvelli í dag. En þeir sigruðu 1-0. Það var Víðir Þorvarðarson sem að skoraði mark KFS rétt fyrir hálfleik. Miðað við færin í seinni hálfleik var KFS mun líklegra liðið til að bæta við marki. KFS er nú með 22 stig í 17 leikjum. Næsti leikur er einnig heimaleikur en hann er miðvikudaginn 25. ágúst á Hásteinsvelli kl. 18:00.
Ljósmyndari Tíguls var á svæðinu og má sjá hér myndir úr leiknum.


