KFS var með góðan sigur gegn ÍH á útivelli í gær og er því með öruggt sæti í 3. deildinni næsta sumar. KFS vann 3-5 sigur í dag, í miklum markaleik. En KFS lenti undir í byrjun leiks, fékk á sig 2 mörk á fyrstu 6 mínútunum. En það var Ásgeir Elíasson sem að skoraðis fyrsta mark KFS á 31. mínútu og þar var ekki fyrr en á 50. mínutu sem að Daníel Már Sigmarsson jafnaði metin fyrir KFS. En og aftur lenti KFS undir þegar að Andri Már Sólbergsson leikmaður ÍH skoraði sitt þriðja mark á 72.mínútu. En Elmar Erlingsson skoraði svo þriðja mark KFS á 88 mínútu. Leikamaður ÍH skoraði síðan sjálfsmark á 90. mínútu og staðan þá orðin 4-3 fyrir KFS. Í lokin setti Ásgeir Elíasson sitt annað mark fyrir KFS á 91. mínútu og gulltryggði KFS sigur.
Laugardagur 3. júní 2023