02.01.2021
Vinningshafi 104 milljóna króna í Lottói, sem dreginn var út annan í jólum, hefur ekki gefið sig fram enn
Vinningurinn kom á tíu raða lottómiða sem keyptur var í sölukassa í Krambúðinni á Selfossi, og biðlar Stefán S. Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, til miðahafa á Suðurlandi að skoða miða sína vel.
„Það væri gaman ef hann kæmi að ná í peninginn sinn,“ segir Stefán í Morgunblaðinu í dag. Hann segir það sjaldgæft í dag að vinningar sitji eftir ósóttir, hvað þá svona stórar fjárhæðir.
Miðaeigandinn keypti sér tíu raða Lottómiða í Krambúðinni og fékk vinning upp á 104.129.690 krónur.
Lukku tölurnar voru 1-6-17-23-37 og bónustalan var 8.

