Sveitakeppni í golfi er haldin ár hvert, yngri sveit í júlí og eldri sveit 50 + er haldin í ágúst
Frá því 2017 hefur sveit frá Golfklúbbi Vestmannaeyja (GV) tekið þátt, en þá hafði ekki nein kvennasveit frá GV verið í 24 ár. Þetta árið mun GV senda 50 + sveit en þær spila í 1 deild, þar sem þær héldu sér uppi í fyrra í sveit þeirra bestu.
Sveitina í ár skipa systurnar þrjá Katrín Harðardóttir, Alda Harðardóttir og Hrönn Harðardóttir ásamt Freyju Önundardóttir, Þóru Ólafsdóttur, Þuríður Bernódusdóttir og Jóhönnu Waagfjörð.
Til að geta tekið þátt í svona keppni þarf að fjármagna kostnaðinn
,,Golfklúbburinn hefur látið okkur eftir einn dag fyrir okkur til að halda mót sem er eingöngu styrktarmót fyrir sveitirnar okkar. Þann 16. júlí verður mótið og eru það aðalstyrktaraðilar okkar. Sem er fyrirtæki þeirra hjóna Unu og Þórs 2Þ.
Fjöldinn allur af frábærum vinningum verða á mótinu: Gisting á Hótelum og gististöðum í eyjum, gjafabréf frá Golfsaga, Nauthól, Golfcompany
Þær hvetja ykkur til að skrá ykkur til leiks í þetta flotta golfmót 2þ og styrkja þar með þær í leiðinni.


