23.06.2020
Ný þáttaröð um íslenska knattspyrnu verður sýnd á Stöð 2 í sumar og hefur hún fengið nafnið Framlengingin.
Í þáttunum Framlengingin ferðast margir af þekktustu fyrrverandi knattspyrnumönnum Íslands um landið og skora á knattspyrnulið á landsbyggðinni í góðgerðarleik til styrktar málefnum í hverju sveitarfélagi. Búið er að mynda öflugt og sterkt kempulið sem heitir FC Ísland.
Fyrsta æfingin hjá kempunum var í gær mánudag og gekk æfingin vel og án nokkurra meiðsla. Það er mikill keppnisandi í liðinu og þó þeir séu komnir af léttasta skeiði í boltanum þá vantar ekki keppnisskapið í þessa kunnu kappa.

Heyrst hefur að verið sé að smala í mjög sterk lið á öllum stöðum þar sem keppt verður, þannig að FC Ísland er með ýmsar stórgóðar og nýjar hugmyndir um það hvernig þeir ætla að ná fram sigri í leikjunum. Liðið gerir meira en bara að spila fótbolta en ýmsar skemmtilegar þrautir verða lagðar fyrir liðið með það að markmiði að safna áheitum.
FC Ísland mun spila fjóra leiki og fara þeir fram í Vestmannaeyjum, á Akranesi, á Akureyri og í Reykjavík. Það standa vonir til þess að á hverjum stað muni heimamenn plata sínar kempur út á völlinn og úr verði skemmtilegri leikir.
Fyrsti leikur liðsins er klukkan 20.00 á Hásteinsvelli á fimmtudagskvöldið eða beint á eftir setningu Orkumótsins.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson verður fyrirliði liðs Eyjamanna sem fær það verkefni að mæta FC Íslandi. FC Ísland mun í samstarfi við Ufsaskalla vinna að góðgerðarsöfnun fyrir stuðningsfélag krabbameinssjúklinga í Vestmannaeyjum. Ufsaskalli ætlar að gefa 500 þúsund krónur í tengslum við þáttinn.
Lið FC Ísland sem keppir í fyrsta leiknum í Eyjum er skipað eftirtöldum leikmönnum:
- Baldvin Jón Hallgrímsson
- Birkir Kristinsson
- Bjarnólfur Lárusson
- Björgólfur Takefusa
- Eyjólfur Örn Eyjólfsson
- Eysteinn Lárusson
- Hjörtur Hjartarson
- Ingólfur Sigurðsson
- Ingólfur Þórarinsson/veðurguð
- Jón Hafsteinn Jóhannsson
- Sævar Þór Gíslason
- Tryggvi Guðmundson
- Valur Fannar Gíslason
- Fyrirliði FC Ísland: Bjarnólfur Lárusson
- Þjálfari: Tómas Ingi Tómasson
- Aðstoðarþjálfari: Friðgeir Bergsteinsso
Hérna er linkur á viðburðin á facebook
