Karolina Olszowa og Marta Wawrzynkowska hafa gert nýjan 1 árs samning við Handknattleiksdeild ÍBV.
Stelpurnar eru nú að leika sitt annað tímabil með ÍBV og hafa samþykkt að fara með okkur inn í það þriðja!
Þær hafa komið vel inn í liðið okkar ásamt því að hafa aðlagast lífinu í Eyjum vel. Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt okkur krafta þeirra áfram næsta tímabil, hið minnsta.
Karolina hefur leikið töluvert varnarlega, bæði sem tvistur og þristur og gefur ekkert eftir þar. Sóknarlega hefur hún komið inn með flotta kafla m.a. í síðasta leik gegn Haukum þegar hún skoraði 3 mörk og gaf 2 stoðsendingar.
Marta hefur leikið mjög vel í markinu yfir tímabilið það sem af er og hreint frábærlega á köflum. Hún hefur varið að meðaltali tæp 11 skot í leik og með 36,5% hlutfallsvörslu í þeim 12 leikjum sem búnir eru í Olísdeild kvenna.
Við óskum stelpunum til hamingju og hlökkum til áframhaldandi samstarfs segir í tilkynningur frá ÍBV handboltanum.

