
Nafn: Karlīna Miksone Heimabær: Liepāja (Lettland) Staða á vellinum: Ég er miðjumaður Hver eru þín helstu áhugamál? Göngur, dansa, grínast. Hvað stendur upp úr frá síðasta ári? Meistarar í Lettlandi, 2. sætið í bikarkeppninni, 3. sæti Baltic-bikarnum og 1. sæti með landsliðinu í Baltic-bikarnum. Hvernig undirbýrðu þig fyrir leik? Tala við einhvern, hlusta á tónlist, borða banana og sjá leikinn fyrir mér. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Góð söngkona og dansari. Hvernig líst þér á Vestmannaeyjar og veðrið? Einstaklega falleg náttúra, vinalegt fólk. Veðrið hérna er svolítið hættulegt þar sem þú veist aldrei hvernig það verður eftir klukkutíma. Ég bíð spennt eftir sumrinu þegar allt verður orðið grænt. | Nafn: Olga Ševcova Heimabær: Rīga (Lettland) Staða á vellinum: Ég er sóknarmaður Hver eru þín helstu áhugamál? Göngutúrar og upplifa nýja hluti. Hvað stendur upp úr frá síðasta ári? Meistarar í Lettlandi, 2. sætið í bikarkeppninni, 3. sæti Baltic-bikarnum og 1. sæti með landsliðinu í Baltic-bikarnum. Hvernig undirbýrðu þig fyrir leik? Myndbandagreining andstæðings, hlusta á tónlist og hugsa um hvað ég ætla að gera í leiknum. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Þeir eru leyndarmál. Hvernig líst þér á Vestmannaeyjar og veðrið? Þetta er fallegur staður en hættulegur að búa á, upplifi eitthvað nýtt á hverjum degi. Veðrið getur verið sól og snjóstormur á sama deginum, hef alltaf með mér hlýjan jakka og sólgeraugu. |