Karlakór Vestmannaeyja er stórhuga þessa dagana en þeir halda tónleika ásamt hljómsveit í Höllinni á morgun fimmtudag kl. 20.00.
”Menn eru orðnir óþreyjufullir að fá að syngja fyrir fólk enda orðið langt síðan síðast,” sagði Sæþór Vídó, meðlimur í Karlakór Vestmannaeyja í samtali við Tígul en kórinn hefur ekki náð að halda sína árlegu vortónleika undanfarin tvo ár. “ Við ákváðum því að hafa þetta extra grand hjá okkur að þessu sinni og bókuðum Höllina og kölluðum til hljómsveit og allan pakkann. Við hefjum tónleikana á nokkrum karlakóra sleggjum við undirleik Kitty Kovács áður en hljómsveitin tekur við. Með henni flytjum við lög eins og Úti í Eyjum, Fjöllin hafa vakað, Pabbi þarf að vinna, Undir þínum áhrifum og ýmsa dægurlagaslagara að ógleymdri syrpu með lögum Bjartmars sem fagnar einmitt 70 ára afmæli í ár.” Að sögn Sæþórs fer miðasalan vel af stað þannig að það borgar sig að tryggja sér miða sem fyrst. “Miðaverð er kr. 3.500 og fer forsalan aðeins fram á netinu, á Tix.is. En þeir sem ekki telja sig hafa kunnáttu í að versla þar geta kíkt á Andra niður í Tölvun og hann verður þeim úti um miða. Að sjálfsögðu verður svo einnig miðasala við innganginn,” sagði Sæþór.
Tónleikarnir fara, eins og fyrr sagði, fram í Höllinni annað kvöld kl. 20.00 en húsið opnar hálftíma fyrr. Tígull leit við á fyrstu æfingu kórsins í Höllinni í gær og má sjá lítið brot af heimsókninni hér að neðan.

