Karen hlaut verðlaun fyrir mjög góðan árangur í íslensku á stúdentsprófi.
Fullt nafn: Karen Eir Magnúsdóttir.
Foreldrar: Bergey Edda Eiríksdóttir & Magnús Steindórsson.
Systkini: Guðrún Bára og Aron Smári
Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Já ég ætla mér að verða leiksskólakennari.
Ætlar þú strax í áframhaldandi nàm? Já, en ég ætla að taka mér árs pásu og vinna
Í hvað skóla stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Ég stefni á að fara í Háskóla Íslands í leikskólakennarafræði og ég ætla mér að taka það í fjarnámi.
Hvernig er þín upplifun af FÍV? Góður skóli, gott starfsfólk og mér fannst sérstaklega gaman að fara í skólann og hitta vinina
Uppáhalds kennari í FÍV? Úff, þetta er mjög erfið spurning. Held ég verði samt að segja Auðbjörg og Margrét
Uppáhalds kennari í GRV? Evelyn og Hildur voru uppáhalds þar.
Hvað var skemmtilegasta námsfagið þitt? Það var uppeldisfræði, kynjafræði og þroskasálfræði
Eitthvað að lokum? Takk fyrir mig FÍV, þetta eru 3 ár sem ég mun seint gleyma


