Veistu svarið?
Kahoot! spurningakeppni um rafhlaupahjól. Einföld og skemmtileg leið til að fara yfir helstu reglur og atriði varðandi notkun rafhlaupahjóla.
Keppnin inniheldur 18 spurningar og til að geta svarað spurningunum þurfa þátttakendur að hafa kynnt sér helstu reglur og atriði varðandi notkun rafhlaupahjóla sem finna má hér.
Til að spila Kahoot þarf annars vegar að hafa stóran skjá sem allir leikmenn geta séð á og stjórnandinn notar til að birta spurningarnar á. Hins vegar þarf snjallsíma eða nettengdartölvur fyrir hvern leikmann eða leikmannahóp svo þeir geti tekið þátt.
Smelltu á myndina til að taka þátt:


