Það kafsnjóar hér í Eyjum þennan morguninn og færð orðin þung. Búið er að ryðja helstu stofnæðar og verður áfram unnið við ruðninga í dag.
Samkvæmt Veðurstofunni á að hlýna og hitastigið +1°C upp úr klukkan 10. Þá á einnig að draga úr úrkomunni. Hins vegar á að kólna og frysta aftur seinni partinn og á morgun.
Það er því um að gera að fara varlega í umferðinni í dag og næstu daga.

