Fyrir hönd frambjóðenda Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vil ég þakka fyrir stuðning ykkar og
hvatningu í aðdraganda kosninga til Alþingis Íslendinga 25. september síðastliðinn. Við munum leggja
okkur fram við að vinna að framgangi jafnaðarstefnunnar hér eftir sem hingað til.
Ég óska öðrum kjörnum þingmönnum til hamingju og vonast eftir þéttara samstarfi en áður um
hagsmuni íbúa í Suðurkjördæmi.
Í kosningaáherslum okkar lögðum við í Samfylkingunni höfuðáherslu á heilbrigðismálin og á að
heilsugæsla í heimabyggð væri fyrir alla. Við lögðum fram skýra sýn á hvernig bæta mætti kjör eldra
fólks og öryrkja. Barnabætur að norrænni fyrirmynd með óskertum barnabótum að meðallaunum er
einnig forgangsmál okkar. Við leggjumst gegn sérstökum vegaskatti á Sunnlendinga fyrir sjálfsagðar
vegabætur líkt og með nýrri brú yfir Ölfusá. Nýsköpun í atvinnumálumn og öflugar menntastofnanir,
þar á meðal Garðyrkjuskólinn að Reykjum, skipta verulegu máli fyrir búsetuskilyrði um allt
kjördæmið. Umferðaröryggi er víða ábótavant og efla þarf lögreglu og viðbragðaðila til muna.
Ég mun í starfi mínu sem þingmaður halda áfram að vinna ötullega að þessum málum.
Okkar draumar og hugsjónir í Samfylkingunni snúast um velferð fyrir alla. Að verja hagsmuni vinnandi
fólks, verja mannréttindi og verja almannahagsmuni gegn rótgrónum sérhagsmunum hér á landi. Það
er hlutverk okkar jafnaðarmanna og við megum aldrei sofna á verðinum.
Við erum andstæðingar ranglætis og spillingar og viljum að langtímafjárfesting samfélagsins sé í
menntun, heilsugæslu og umönnun barna.
Bestu kveðjur,
Oddný G. Harðardóttir