Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., kom á fund bæjarráðs í gær og gerði grein fyrir starfsemi félagsins síðustu mánuði, m.a. farþegafjölda. Alls voru fluttir 83.754 farþegar í júlí, sem er fjölmennasti mánuður frá upphafi. Til samanburðar voru fluttir 79.102 farþegar árið 2016, sem er næst fjölmennasti júlímánuður frá upphafi.
Rekstur félagsins er í jafnvægi og afkoman í takt við áætlanir. Fluttir hafa verið fleiri farþegar en reiknað var með og tekjur því hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hins vegar fylgdi töluverð kostnaðaraukning því að Landeyjarhöfn lokaði að mestu í janúar, febrúar og mars fyrr á þess ári vegna ónógs dýpis í Landeyjahöfn. Einnig stendur til að senda Herjólf í slipp í október nk., sem verður félaginu kostnaðarsamur.

