Jóna Björg Guðmundsdóttir lét af störfum í Safnahúsi Vestmannaeyja síðastliðið sumar, eftir að hafa starfað þar óslitið í 32 ár sem héraðsskjalavörður
Jóna lauk námi í Bókasafns- og upplýsingafræði árið 1989 og var þá ráðin á bókasafn Vestmannaeyja. Sama ár var hún ráðin sem héraðsskjalavörður við Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja. Nú í haust var hún gerð að heiðursfélaga í Félagi héraðskjalavarða á Íslandi segir í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.
Er Jónu Björgu óskað innilega til hamingju með heiðurinn og henni þökkuð vel unnin störf fyrir Vestmannaeyjabæ.

