Miðvikudagur 7. júní 2023

Jólatónleikar kórs Landakirkju miðvikudaginn 15. desember

Hraðpróf og grímuskylda á Jólatónleikum kórs Landakirkju

Kór Landakirkju heldur jólatónleika sína að kvöldi miðvikudagsins 15. desember og hefjast þeir kl. 20:00

Löng hefð er fyrir tónleikunum og í hugum margra skipa þeir stóran sess á aðventunni. Tónleikarnir fóru ekki fram í fyrra og því má segja að undirbúningur hafi staðið yfir á annað ár. Dagskráin verður að vanda sneisafull af hátíðlegum og hrífandi jólalögum líkt og undanfarin ár.

Tónleikarnir eru tvískiptir rétt eins og hefð er fyrir en dagskráin hefst í sal safnaðarheimilis Landakirkju og líkur svo uppi í Landakirkju. Einar Clausen syngur einsöng með kórnum sem er dyggilega stýrt af Kitty Kovács organista Landakirkju. Aðrir undirleikarar eru Balázs Stankowsky, fiðla, Einar Hallgrímur Jakobsson, trompet, Jóhanna Svava Darradóttir, þverflauta.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf en það er litlar kr. 3.000 fyrir þessa tónlistarveislu á aðventu.

Athugið að grímuskylda er á tónleikunum og framvísa þarf Covid-19 hraðprófi sem ekki er eldra en 48 klst gamalt. Hægt er að bóka hraðpróf á Heilsuvera.is og fara hraðpróf fram á heilsugæslu HSU í Vestmannaeyjum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is