26.11.2020
Jólasveinaklúbbur 2020
Frá 30. nóvember til 18. desember geta börn frá leikskólaaldri og upp í 5. bekk GRV gengið í Jólasveinaklúbb Bókasafns Vestmannaeyja.
Þátttakendur velja sér bók/bækur á Bóka¬safninu og lesa að minnsta kosti 10 skipti, í að lágmarki 15 mínútur í hvert sinn.
Fyrir yngri börnin mega foreldrarnir lesa bækurnar. Þau sem eiga jólasveinaskírteini geta notað þau en þau sem eru ný í klúbbnum fá jólasveinaskírteini við skráningu í klúbbinn.
Ef þau sem hafa tekið þátt áður hafa týnt skírteininu sínu geta þau að sjálfsögðu fengið nýtt. Allir fá „lestrarhest“ við skráningu sem fylltur er út og skilað inn á safnið í 18.-21. desember.
Þau sem skila inn útfylltum lestrahesti fá glaðning frá Bókasafninu.
Góða skemmtun!