Þessi jólalegi Pavlovukrans gerði hún Berglind Sigmarsdóttur.
Hann á líklegast eftir að slá í gegn í mörgum jólaboðum enda færðu varla jólalegri rétt en þetta.Í ofanálag er um að ræða krans sem er sérlega hátíðlegur og fagur enda er það sómakonan og meistarakokkurinn Berglind Sigmarsdóttir sem á heiðurinn af honum.
Undirbúið plötu. Setjið bökunarpappír á plötu og teiknið hring, annan 22 cm og minni hring inn í, 13 cm.
Hitið ofn í 120 gr. C
4 eggjahvítur
250 gr. sykur
1/4 tsk. salt
2 tsk. maizena-mjöl
1 tsk. hvítvínsedik
Bleikur matarlitur
Aðferð:
Setjið eggjahvítur í skál og byrjið að þeyta mjög rólega á meðan þið vigtið sykur.
Þegar aðeins froða er farin að myndast bætið þá í hraðann og setjið sykur og salt hægt og rólega saman við.
Bætið svo í hraðann jafnt og þétt alveg upp og þeytið þar til stíft og glansandi.
Bætið þá varlega saman við með sleif maizenamjöli og ediki.
Takið skeið og setjið marengs á hringinn á pappírinn.
Ef þið viljið lita hann, dýfið prjón í lit og búið til hringi efst í marengsinn svo það myndist marmaraáferð.
Setjið inn í ofn og bakið í 2 klst. Slökkvið á ofninum og takið út þegar ofninn er orðinn kaldur. Fínt að slökkva og geyma yfir nótt.
Ofan á:
4-5 dl rjómi
1 tsk. vanilludropar
2 msk. flórsykur
1 bakki fersk jarðarber
Aðferð:
Setjið kransinn á kökudisk.
Þeytið rjómann, setjið svo á lægstu stillingu og setjið vanilludropa og flórsykur við.
Skerið jarðarber í bita og hrærið með sleif saman við rjómann.
Setjið rjóma-jarðarberjablöndu á kransinn.
Skreytið að vild, mér finnst jólalegt að nota granatepli, rifsber, jafnvel hindber og bláber. Set nokkrar greinar af rósmarín (sem kemur út eins og greni) og svo dustað yfir með smá flórsykri.