Verkið sem afhjúpað var í dag 6. desember á hann Hildar Pálsson og nefnist verkið Sól í hádegisstað.
Hildar Jóhann Pálsson fæddist 9. október 1946 í Glaumbæ í Langadal. Hann lést á heimili sínu að Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 8. nóvember 2015.
Hildar flutti á fjórða aldursári til Vestmannaeyja með foreldrum sínum og bræðrum og ólst upp í Þorlaugargerði vestra í Eyjum. Hildar vann á sínum yngri árum í Hraðfrystihúsi Vestmannaeyja og hin ýmsu verkamannastörf eftir getu. Hildar lenti í slysi 16 ára gamall sem markaði hann fyrir lífstíð og hamlaði honum í hreyfingu og lífsgæðum. Í mörg ár vann hann í Kertaverksmiðjunni í Eyjum. Vegna fötlunar sinnar fékk Hildar inni á Hraunbúðum löngu fyrir aldur fram.