Það er hann Árni Finnbogason sem á þessa flottu mynd dagsins, glugginn 12.desember.
Árni Sigurjón Finnbogason fæddist í Norðurgarði í Vestmannaeyjum þann 6. desember 1893 og lést 22. júní 1992. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Hann var yngstur fimm sona þeirra. Bræður hans voru Björn Þórarinn, Ágúst Kristján, Stefán og Finnbogi. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.
Árni var kvæntur Guðbjörgu Aðalheiði Sigurðardóttur frá Brekkuhúsi. Hófu þau búskap í Bræðraborg og eignuðust níu börn. Guðbjörg Aðalheiður lést árið 1958. Síðari kona Árna var Erla Kristjánsdóttir.
Árni byrjaði ungur sjómennsku á Neptúnusi I. Árið 1916 hóf hann formennsku á Happasæl og ári síðar tók hann við Sillu og svo Helgu til ársloka 1924. Síðan var Árni með ýmsa báta til ársins 1939.
Árni var góður bjargveiðimaður og stundaði bjargsig og fuglaveiði í tugi ára.

Árni Finnbogason Ráðhildur og Ágústa Árnadætur Árni Finnbogason
Upplýsingar og myndir teknar frá Heimaslod.is