Vignir Jóhannson á myndina 10.desember, nánar um hann hér fyrir neðan

Vignir lauk námi við Myndlista-og handíðaskóla Íslands árið 1978 og hélt þá til Bandaríkjanna í framhaldsnám.
Vignir Jóhannsson hefur starfað víða um heim, m.a. í Bandaríkjunum. Hann er með vinnustofur á Íslandi og í Danmörku og tengist norræn/dönskum listamannahópi sem starfar með Hebsgaard Glaskunst. Í Danmörku er hann aðallega þekktur fyrir stór glerverk, þar á meðal stórt speglaverk sem sýnt var á Kastrupgård árið 2011.
Auk höggmynda, ljósinnsetninga og málverka hefur Vignir Jóhannsson einnig unnið leikmyndir fyrir leikhús, sjónvarpsþætti, kvikmyndir og söfn
Vignir hefur haldið fjölda einka- og samsýningar bæði hérlendis og erlendis. Fjöldi verka eftir hann er í opinberri eigu sem og í eigu stærri fyrirtækja.
Nám
1979-81 Rhode Island School of Design Rhode Island Bandaríkin MFA-próf
1974-78 Myndlista-og handíðaskóli Íslands Reykjavík Ísland
1969 Bændaskólinn á Hvanneyri Hvanneyri Ísland

upplýsingar teknar frá Gallery list og mydir af Vigni.