Mánudagur 16. nóvember 2026

Jól í skókassa farið af stað á nýjan leik

Jól í skókassa, verkefni KFUM og KFUK á Íslandi, sem hefur hlotið mikinn stuðning og notið mikillar velgengni undanfarin ár er aftur farið af stað. Verkefnið snýst um að setja litlar og einfaldar gjafir í skókassa sem síðan eru sendir til munaðarlausra og fátækra barna í Úkraínu. Líkt og við þekkjum öll hefur neyð þessa hóps aðeins aukist með stríðinu sem nú geisar í Úkraínu.

Tekið er á móti kössum í Landakirkju en opið er að jafnaði milli kl. 9:00 og fram til 15:00. Síðasti skiladagur skókassa í Vestmannaeyjum er föstudagurinn 4. nóvember.

Mikilvægt er að fara vel eftir leiðbeiningum varðandi hvað má fara í kassana og hvernig ganga eigi frá þeim. Allar upplýsingar um slíkt ásamt prentefni til merkinga er að finna á heimasíðu verkefnisins kfum.is/skokassar

Nálgast má skókassa í Axel Ó, Sölku og Flamingo.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search