Fimmtudagur 8. október 2026

Jóhanna Helga Sigurðardóttir heiðruð af Sjómannadagsráði

5 eða 6 ára gömul á fullu í undirbúning fyrir sjómannadaginn

Sjómannadagsráð Vestmannaeyja 2022 heiðrar Jóhönnu Helgu Sigurðardóttur fyrir fórnfúst og óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf í þágu ráðsins. Jóhanna Helga er er fædd árið 1998 og er dóttir Sigurðar Þórs Hafsteinssonar og Auðar Karlsdóttur. Hún var ekki há í loftinu þegar hún var mætt með pabba sínum fyrir Sjómannadag að undirbúa helgina. Líklega 5 eða 6 ára gömul.

Siggi Þór faðir hennar var í Sjómannadagsráði frá 1992 til 2016 en það ár var hann heiðraður af Sjómannadagsráði fyrir vel unnin störf í þágu ráðsins. Það má segja að hún Jóhanna hafi gleymst þá. Jóhanna Helga var með pabba sínum frá 2004 til 2016 og fylgdi honum eins og skugginn. Gekk í öll störf með pabba sínum við bátana. Gera þá sjóklára fyrir sjómannadag. Koma þeim á flot og sjá um þá meðan þeir voru á floti og ganga frá þeim eftir daginn ásamt honum.

Hún var líka einhver ár í miðasölunni fyrir ráðið. Það er ómetanlegt að eiga svona fólk að þegar kemur að undirbúningi Sjómannadagsins og frágangi eftir hann. Við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því hvað fólkið sem lítið ber á gerir fyrir okkur. Ég man ekki betur en hún hafi líka lesið ritningarlestur fyrir sjómenn í Sjómannadagsmessunni í nokkur skipti.

Ræða Valmundar Valmundarsonar frá heiðruninni á sjómannadaginn.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search