Um goslokin á að frumsýna sýninguna Grease en alls koma 120 manns að sýningunni
Með aðalhlutverkin fara Ingó Veðurguð, Jóhanna Guðrún, Stebbi Jak og Stefanía Svavars ásamt hljómsveit og crew. Alls í þeim hópi eru um 25 manns.
Við fengum Jóhönnu Guðrúnu til að svara nokkrum spurningum.
Jóhanna Guðrún er fædd árið 1990 og er hafnfirðingur. Maki hennar er Davíð Sigurgeirsson og eiga þau tvö börn. Margréti Lilju 5 ára og Jón Geir 1 árs.
Hvað er um að vera núna þessa daganna hjá þér eða ertu kannski bara í æfingum við Grease?
Það er heilmikið tilstand í kringum Grease, enda á þetta að vera tímamóta show! Annars er ég að syngja útum allan bæ alltaf, reyndar núna í covid ástandinu þá hefur verið meira um streymis viðburði, það er bara skemmtileg tilbreyting.
Er þetta í fyrst sinn sem þú leikur/syngur í Grease?
Nei, ég hef gert það einu sinni áður.
Hvað er uppáhaldslagið þitt í sýningunni?
Hopelessly devoted to you klárlega
Hvernig var árið 2020 fyrir þig sem listakonu?
Mjög skrýtið miðað við önnur ár. Mikið gert í streymi og ég hef saknað þess að geta ekki flutt tónlist fyrir framan sal af fólki, það gefur manni svo mikið. Ég gaf út jólaplötu, ég hef ekki gefið út nýtt efni í mörg ár svo að það var ákveðin áfangi útaf fyrir sig og virkilega skemmtilegt ferli. Svo var afskaplega dýrmætt að hafa aðeins meiri tíma til að vera með börnunum mínum og fjölskyldu.
Eru einhver önnur stór verkefni framundan hjá þér sem þú getur sagt okkur frá?
Já það eru stór verkefni í sigtinu, en ekkert sem ég get talað um akkúrat núna :)
Hverjar voru/eru þínar fyrirmyndir í söngnum?
Ellý Vilhjálms, Celine Dion, Whitney houston, Eva Cassidy, Linda Ronstadt, Mariah Carey, Don Henley, Robert Plant, Elvis Presley til að nefna einhver dæmi.
Áttu einhverja ættingja í Vestmanna-eyjum?
Ekki nána ættingja nei, en manni líður samt einhvernvegin alltaf eins og heima hjá sér þegar maður er hjá ykkur :)
Hefur þú komið á þjóðhátíð, þá ekki til að koma fram?
Já, algjörlega. Þetta er náttúrulega engu líkt þessi hátíð ykkar!

