Karlalið ÍBV gerði jafntefli við lið FRAM á Hásteinsvelli í dag í Bestu deildinni. Fyrsta mark leiksins kom á 16. mínútu þegar Guðmundur Magnússon kom Fram yfir. Það var Alex Freyr Hilmarsson sem jafnaði fyrir ÍBV á 25. mínutu og var því 1-1 í hálfleik. Fram komst yfir á 64. mínútu og virtust ætla að sigla sigrinum heim en ÍBV liðið sýndi karakter og komu til baka á 82. mínútu þegar Telmo setti boltann í netið. Lokatölur því 2-2. ÍBV er með 20 stig eftir 21 leik og situr í 9. sæti.
Sunnudagur 15. nóvember 2026

