Við verðum á ferðinni í allt sumar að taka nýjar 360° götumyndir segir í tilkynningu frá vefsíðunni ja.is.
Höfuðborgarsvæðið og helstu nágrannasveitarfélög verða fyrst mynduð, en svo stefnum við á að rúlla hringinn í kringum landið og koma við á helstu þéttbýlisstöðum. Sigurður Júlíus verður við stýrið og hægt er að fylgjast með ferðalaginu á Já.is (um.ja.is/360) og á Instagram Já (jaersvarid) þar sem hann mun segja frá hvert förinni er heitið hverju sinni og hvernig gengur á leiðinni.
Þannig þið hér í Vestmannaeyjum hafið smá tíma til að taka til í kringum húsin ykkar til að fá fína mynd.

