30.10.2020
Tilkynning Vestmannaeyjabæjar vegna hertra samkomutakmarkana 30. október 2020
Í ljósi hertra samkomutakmarkana stjórnvalda og gildistöku nýrrar reglugerðar heilbrigðisráðherra á miðnætti í kvöld, þarf að loka Íþróttamiðstöðinni, þ.m.t. sundlauginni og Herjólfshöllinni frá og með morgundeginum.
Upplýsingum um starfsemi bæjarins vegna umræddra takmarkana stjórnvalda verður miðlað á vef bæjarins, vestmannaeyjar.is
Nánari upplýsingar um opnunartíma stofnana bæjarins verða veittar í byrjun næstu viku.
Jafnframt verður upplýst um starfsemi skólastarfs um leið og reglugerð liggur fyrir.
Sérreglur gilda um Hraunbúðir, Heimaey hæfingarstöð og þjónustuíbúðir fyrir fatlaða.
Forstöðumenn umræddra stofnana munu útbúa og birta reglur um heimsóknir.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri