iþrottamistodin

Íþróttamiðstöðin lokuð til og með 26. mars

20.03.2020

Ákveðið var í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi, að loka Íþróttamiðstöðinni tímabundið þar sem starfsmaður hafði greinst með kórónaveirusýkingu.

Var þessi ákvörðun tekin í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Rakningarteymið hefur nú unnið úr upplýsingum og haft hefur verið samband við starfsmenn sem þurfa að fara í 14 daga sóttkví frá því að mögulegt smit gæti hafa átt sér stað. Samkvæmt niðurstöðum rakningarteymis fara 14 af 16 starfsmönnum íþróttamiðstöðvar í sóttkví .

Ekki er hægt að manna starfsemi stofnunarinnar á meðan og verður því Íþróttamiðstöðin lokuð til og með 26. mars næst komandi.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is