Stelpurnar í 5. flokk, eldra ár, í handbolta urðu Íslandsmeistarar á sunnudaginn. Þær hafa átt ótrúlega flott tímabil í vetur og sigruðu alla leikina sína, þannig að það var aldrei spurning hvar titilinn myndi lenda.
Framtíðin er björt og hlökkum við til að fylgjast með stelpunum í framtíðinni, segir í frétt á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags. Þjálfarar stelpnanna eru þau Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Hákon Daði Styrmisson.
Innilega til hamingju með flottan árangur stelpur og þjálfarar.

Mynd: ÍBV sprot.

