11.05.2020
Útibú Íslandsbanka opna í dag með breyttu sniði, pantaðu símtal og við aðstoðum símleiðis.
Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi bókum við fund og tökum vel á móti þér. Bókið tíma hér og kynnið ykkur afgreiðslutíma.
Eftirfarandi kemur fram á heimasíðu Íslandsbanka.
Til að virða megi tveggja metra regluna um fjarlægð milli fólks þarf að panta tíma fyrirfram til að fá afgreiðslu og hvetjum við viðskiptavini til að bóka sér tíma og við aðstoðum símleiðis. Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi bókum við fund í útbúinu og tökum vel á móti þér. Pantaðu tíma hér.
Ráðgjafaverið er opið frá kl. 9:00 til 16:00 og netspjallið frá kl. 9:00 til 18:00, alla virka daga. Viðskiptavinir eru beðnir um að nýta sér stafrænar lausnir fyrir einfaldari og þægilegri bankaviðskipti.
Eldri borgarar geta hringt í 440-3737 fyrir alla helstu bankaþjónustu.