Í tilefni af 100 ára afmæli Íslandsbanka býður Íslandsbanki öllum börnum í Grunnskóla Vestmannaeyja á teiknimyndina Everest sem sýnd er í Eyjabíó. Myndin sem sýnd verður heitir Everest ungi snjómaðurinn.
Sýningarnar verða þrjár:
Þriðjudaginn 22. október kl. 17:00
Miðvikudaginn 23. október kl. 17:00
Fimmtudaginn 24. október kl. 17:00
Foreldrar og forráðamenn fá frítt inn í fylgd barna. Skráning er óþarfi og nægir að mæta tímanlega fyrir sýningu. Athugið að sætaframboð er takmarkað og því gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Everest ungi snjómaðurinn er í 97 mínútur. Sagan gerist í Kína og við kynnumst hér ungu tónlistarkonunni og fiðluleikaranum Yi sem verður meira en lítið hissa þegar hún rekst á ungan en risastóran snjómann í felum á þaki blokkarinnar þar sem hún býr. Þeim verður strax vel til vina og þegar Yi áttar sig á að snjómanninum unga hefur verið rænt fær hún vini sína, þá Jin og Peng, til að aðstoða sig við að koma honum aftur heim til fjölskyldu sinnar sem býr á toppi Everest-tinds í Himalaja-fjöllum