bær

Ísland að undirbúa hertar kröfur í loftslagsmálum

11.11.2020

Ísland undirbýr nú hert markmið innan ramma Parísarsamningsins, að því að Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra sagði á málþingi Loftslagsráðs og breska sendiráðsins í gær.

Aðgerðaáætlun stjórnvalda, sem kynnt var fyrr á þessu ári, gerir ráð fyrir meiri samdrætti í losun en gerð er krafa um í núverandi skuldbindingum Íslands. Hún er því góður grunnur til að byggja á. Þá styðja mótvægisaðgerðir gegn Covid-faraldrinum við græna og loftslagsvæna endurreisn. Ísland og önnur ríki munu þurfa að herða loftslagsmarkmið sín til að ná markmiðum Parísarsamningsins.

Ráðherra hélt erindi á málþinginu, sem fjallaði um stöðu mála í loftslagsmálum í ljósi Covid-19 og endurbyggingar í kjölfar faraldursins og væntanlegs loftslagsþings Sameinuðu þjóðanna (COP 26) í Glasgow. Halda átti þingið nú í nóvember, en því hefur verið frestað um eitt ár vegna ástandsins. COP 26 er að margra mati mikilvægasta þing Loftslagssamnings S.þ. síðan Parísarsamningurinn var samþykktur 2015. Þar á að ræða uppfærslu á losunarmarkmiðum ríkja, í ljósi þess að núverandi markmið duga ekki að mati vísindamanna til að halda hlýnun innan við 2°C og leita leiða til að halda hlýnun innan við 1,5°C.

Guðmundur Ingi sagði Ísland styðja aukinn metnað á heimsvísu í loftslagsmálum og að Ísland væri reiðubúið að leggja sitt af mörkum. Stór skref hefðu verið stigin á sl. 3 árum, s.s. með samþykkt nýrrar og metnaðarfullrar aðgerðaáætlunar og stórfelldri aukningu í opinberum framlögum til loftslagsmála, samstarfi við atvinnulíf, styrkingu stjórnsýslu, rannsókna og nýsköpunar.

Íslensk stjórnvöld hefðu nú öflug stjórntæki til að ná árangri og væru vel í stakk búin til að mæta auknum kröfum.

Hlutverk Íslands í loftslagsmálum í alþjóðlegu samhengi var einnig til umræðu á málþinginu. Sagði ráðherra Ísland, í krafti smæðar sinnar, geta brugðist hraðar við en mörg önnur ríki og þannig sett gott fordæmi á mikilvægum sviðum sem hægt sé að vinna áfram á stærri skala.

Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is