Þriðjudagur 5. desember 2023
HSU

Ískaldar kveðjur til starfsmanna Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands

Enn og aftur eru það starfsmenn í ræstingu og nú einnig í þvottahúsi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem verða fyrir barðinu á uppsögnum vegna „hagræðingar“.

Afl starfsgreinafélag, Báran, stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag og Verkalýðsfélag Suðurlands mótmæla fyrirhuguðum uppsögnum á ræstingafólki og starfsmönnum í þvottahúsi hjá HSU. Réttindi og kjör þeirra starfsmanna sem munu verða ráðnir í þessi störf munu verða lakari en hjá þeim starfsmönnum sem hafa gengt þeim til þessa. Starfsmönnum var tilkynnt í framhaldinu að ekki væri óskað eftir starfsumsóknum frá þeim hjá nýjum atvinnurekanda!

Á vef ríkiskaupa þann 19.02 2021 kemur fram að árangursríkt útboð HSU á ræstingu hafi átt sér stað, þar sem kemur fram að kostnaður er langt undir kostnaðaráætlun.

Hljómar þessi frétt eins og dæmalaus siguryfirlýsing um að tekist hafi að lækka launakostnað starfsfólks, sem er á algjörum lágmarkstöxtum við erfiða vinnu.

Þetta eru kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar og vægast sagt lítilsvirðing fyrir störfum þessa hóps sem hafa ekki síður verið í framlínunni sérstaklega á tímum þessarar farsóttar.

Stéttarfélögin skora á stjórn stofnunarinnar að hætta við fyrirhugaðar uppsagnir og um leið aðför að þessum störfum. Sýnum störfum jafna virðingu.

23.02 2021
F.h. stéttarfélaganna

Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
Formaður Afls

Arnar G. Hjaltalín
Formaður Drífanda

Halldóra Sigr. Sveinsdóttir
Formaður Bárunnar

Guðrún Elín Pálsdóttir
Formaður Verkalýðsfélags Suðurlands

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is