Allir fá þá eitthvað fallegt!
Hin margrómaða jólasíld Ísfélagsins verður afhent öllum sem vilja í dag milli kl 12 og 14, á meðan birgðir endast.
Í síldinni er mikil ást og enn meira af umhyggju. Með síldinni ætlum við einnig að gefa boli og spil svo börnin fái eitthvað með.
Við hlökkum til að sjá ykkur í portinu við frystihús félagsins, Strandvegsmegin.

