Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Ísak Rafnsson til næstu þriggja ára. Ísak þarf ekki að kynna fyrir handboltaáhugafólki en hann kemur til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu, FH. Hann hefur leikið allan sinn feril hér heima á Íslandi með FH en lék tímabilið 2018-19 með austurríska liðinu Schwaz Handball Tirol.
Ísak er hávaxinn og sterkur leikmaður og hefur verið einn af betri varnarmönnum Olísdeildarinnar um nokkurra ára skeið.
Koma Ísaks til ÍBV er mikið gleðiefni og mun hann styrkja liðið fyrir átökin næstu tímabil.
Það er gaman að geta þess að unnusta Ísaks er Sigríður Lára Garðarsdóttir, sem Eyjamenn þekkja vel úr fótboltanum hér í gegnum tíðina.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Ísak og Grétar Þór, formann handknattleiksdeildar ÍBV, handsala samkomulagið við undirritun.