Þriðjudagur 5. desember 2023

Íris bæjarstóri fór yfir stöðuna á bæjarráðsfundi í dag

17.03.2020

Bæjarstjóri fór yfir viðbrögð bæjarins við Covid-19 faraldrinum.

Bæjaryfirvöld vinna í nánu samráði við Almannavarnarnefnd og sóttvarnalækni umdæmisins.

Allar aðgerðir bæjarins taka mið af tilmælum þessara embætta.

Útbúin hefur verið sérstök viðbragðsáætlun Vestmannaeyjabæjar og viðbragðsáætlanir nokkurra stofnana sem lagðar voru fyrir bæjarráð til kynningar.

Búið er að skipa sérstaka viðbragðsstjórn sveitarfélagsins.

Stjórnina skipa bæjarstjóri, framkvæmdastjórar sviða, fjármálastjóri, verkefnisstjóri og kerfisstjóri tölvukerfa bæjarins.

Kynnt var fyrir bæjarráði tilkynning um skertan opnunartíma stofnana bæjarins til að fækka smitum og viðhalda órofinni þjónustu.

Gripið hefur verið til fordæmalausra viðbragða með ýmsum hætti. Til að mynda hefur starfsfólki sumra stofnana verið skipt í minni hópa þar sem hluti vinnur heima meðan aðrir vinna á starfsstöðvum sínum. Fundir sem starfsmenn Vestmannabæjar sækja skulu eingöngu haldnir með fjarfundabúnaði og óheimilt að funda með öðrum hætti í húsnæði stofnana bæjarins.

Ferðabann á allar vinnuferðir starfsfólks Vestmannaeyja hefur tekið gildi og öllum stærri viðburðum á vegum bæjarins verður slegið á frest.

Bæjarstjóri heldur stöðufundi með bæjarfulltrúum með reglulegum hætti í gegnum fjarfundabúnað og hafa fundir verið haldnir annan hvern dag undanfarna viku. Sú vinna einkennist af góðri samvinnu og sameiginlegum skilningi á alvarlegri stöðu.

Ljóst er að meginþungi starfsemi Vestmannaeyjabæjar mun næstu daga og vikur einkennast af vinnu og viðbrögðum við veirunni.

Reikningar vegna leikskóla- og frístundargjalda sem og skólamáltíða verða sendir út eins og um fulla þjónustu sé að ræða í marsmánuði. Leiðrétt verður fyrir skerðingu á þjónustu fyrir mars og apríl í reikningum af gjöldum fyrir aprílmánuð.

Framkvæmdastjóri Herjólfs hefur unnið eftir ströngum fyrirmælum

Stjórn og framkvæmdastjóri Herjólfs hefur unnið eftir ströngum fyrirmælum um rekstur ferjunnar í aðstæðum sem þessum og gripið hefur verið til fyrirbyggjandi aðgerða til að tryggja órofinn rekstur ferjunnar, en jafnframt öryggi starfsfólks og farþega. Þjónusta kann þó að taka einhverjum breytingum líkt og tilkynnt hefur verið.

Starfsfólk hefur fengið leiðbeiningar og fyrirmæli um hvernig hægt er að verja starfsemina. Verkefnastjórn sem skipuð var útbjó viðbragðsáætlun skv. tilmælum Almannavarnarnefndar og sóttvarnalækni og neyðarstjórn virkjuð á grunni viðbragðsáætlunarinnar.

Stjórn félagsins hefur fundað ört undanfarið vegna ástandsins.

Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og hvetur bæjarbúa til fara að öllum tilmælum

Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og hvetur bæjarbúa til að snúa bökum saman á þessum erfiðu tímum og fara að öllu eftir tilmælum Almannavarna og sóttvarnalæknis. Samfélagsleg ábyrgð, skilningur og gagnkvæm virðing er sérstaklega mikilvæg á tímum sem þessum. Bæjarráð þakkar starfsmönnum sveitarfélagsins, íbúum og atvinnulífinu fyrir þann sveigjanleika sem aðstæður þessar kalla á.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is