Ingibjørg Olsen og handknattleiksdeild ÍBV hafa gert með sér nýjan samning sem nær til næstu tveggja tímabila.
Ingibjørg kom til ÍBV frá færeyska liðinu Vestmanna fyrir nýafstaðið tímabil. Hún var lykilmaður í U-liði okkar í vetur ásamt því að vera hluti af meistaraflokksliðinu.
Ingibjørg og Dánjal, kærasti hennar sem leikur með karlaliði ÍBV, hafa komið frábærlega inn í hlutina hjá félaginu og líður vel í Eyjasamfélaginu.
Við erum ánægð að hafa Ingibjørgu áfram með okkur og hlökkum til áframhaldandi samstarfs segir að lokum í tilkynnigu frá ÍBV.