Icewear opnar 230 fermetra verslun í Baldurshaga, miðvikudaginn 28. júlí
Tígull hitti á Aðalstein Pálsson, framkvæmdastjóra Icewear fyrir utan Baldurshaga í hádeginu í dag en hann, ásamt ágætis hóp af iðnaðarmönnum eru á fullu að standsetja nýju verslunina sem verður alls 230 fermetrar að stærð.
Aðalsteinn féll fyrir þessu flotta húsnæði og sagði það henta mjög vel fyrir Icewear, svo er staðsetningin frábær. Við verðum með alvöru úrval af fatnaði hér þar sem það rúmast vel fyrir. Okkur hlakkar til að taka á móti ykkur öllum eftir viku segir Steini að lokum.


