Þriðjudagur 10. nóvember 2026

Icewear opnar í Baldurshaga á morgun miðvikudag

Icewear er að opna núna í vikunni í Baldurshaga

Tígull heyrði í Aðalsteini Pálssyni framkvæmdarstjóra Icewear og fékk að vita nánar um nýju verslunina.

 

 

Nú voruð þið nýbúin að loka verslun ykkar á Herjólfsbryggju, stóð alltaf til að færa hana í miðbæinn eða var þetta hugmynd sem kom eftir á og hvað varð til þess? 

Við höfum verið að velta því lengi fyrir okkur hvort að við ættum að stækka Icewear verslunina í eyjum og fókusera meira á heimamarkað og það var bara móment núna sem við stukkum á þegar við sáum að þetta flotta verslunarpláss stóð til boða.

Fatalínan er orðin það stór að við þurfum stóra verslun til að sýna almennilega það sem við erum að bjóða og svo nýja barnalínan þar að auki. Icewear hefur bara verið að slá í geng hjá Íslendingum. Það sem gerðist undanfarið árið er að Íslendingar föttuðu hvað Icewear býður flottar vörur og hvað verðin eru alltaf sanngjörn og salan hefur margfaldast á þessum tíma. “Vinir Icewear” telja núna tugi þúsunda og fjölgar á hverjum degi. Við trúum að það sama muni gerast í eyjum enda erum við að senda mikið af vöru til eyjamanna í gegnum vefverslun Icewear.

Verður nýja verslunin svipuð eða verðu hún með breyttu sniði?

Nýja versunin í eyjum verður allt öðruvísi en sú gamla, hún verður fyrir það fyrsta mkilu stærri og meira í anda versluna Icewear í Smáralind og Kringlu, bæði hvað varðar vöruval og útlit.  

Hver mun sjá um að reka verslunina hér í Eyjum?

Verslunarstjóri í nýju versluninni verður Elín sem var áður í verslunarstjóri Icewear og Magnea mun einnig vera með okkur áfram. Svo er að sjálfsögðu alltaf pláss fyrir skemmtilegt og duglegt fólk sem vill vinna hjá flottu og framsæknu fyrirtæki.  

Vantar ykkur starfsfólk?

Við munum alveg örugglega bæta við starfsmannateymið í eyjum á næstunni og þá bæði hluta- og helgarstörf.

Hvernig verður opnunar tíminn hjá ykkur ?

Við munum spila það svolítið eftir eyranu en ég geri ráð fyrir að við höfum verslunina opna flesta daga vikunnar á almennum verslunartíma en högum seglum eftir vindi og veðrum.

Hver er vinsælasta varan ykkar? 

Vinsælustu vörur Icewear hafa verið dúnúlpur, bæði léttur dúnn en enni “puffy” þykkar dúnúlpur sem unga fólkið elskar en allar geta verið. Við höfum lagt áherslu á að hanna nýja “street” línu sem hefur slegið í gegn og erum t.d. með sportgalla sem hafa slegið í gegn og svo eru hettupeysurnar alltaf vinsælar. Barnalínan er mjög sterk og auðvitað er allt sem tengist útivist mjög vinsælt hvort sem það eru göngubuxur, millilag eða ullarundirföt en við erum með allt á milli himins og jarðar sem tegnist útivistinni. Svo verðum við með góða útivistar- og gönguskó frá ítölsku merkjunum Salewa og Asolo og getum að sjálfsögðu alltaf sent vörur á milli verslana ef að vantar stærðir eða stíla sem ekki fást í eyjum.  

Hvernig virkar vinaklúbburinn ykkar?

Þeir sem vilja vera “Vinir Icewear” geta skráð sig sem vinir á www.icewear.is/vinir og við erum góð við vini okkar og erum alltaf að bjóða þeim reglulega sérkjör sem munar um og þar að auki fá þeir alltaf 20% afslátt af öllum Icewear vörum og 10% af öðrum vörumerkjum. Til dæmis bjóðum við 2fyrir1 af Icewear Brim regnkápum og 4fyrir3 af sokkum og stuttermabolum þessa dagana en það er alltaf eitthvað nýtt og mjög spennandi í boði fyrir Vini Icewear.   Mér finnst líklegt að Icewear gefi gestum og gangandi glaðning fyrstu dagana eftir opnun nýju verslunina, við opnum á miðvikudaginn.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri til Eyjafólksins?

Ég bara hlakka til að sýna eyjafólki betur hvað Icewear stendur fyrir í dag og allt það flotta og nýja vöruúrval sem við höfum upp á að bjóða á verðum fyrir alla  – enda er útivist fyrir alla. Icewear er íslenks Hönnun fyrir íslenskra veðráttu og kjörorð Icewear eru Þín útivist – þín ánægja.

Við tökum vel á móti þér segir Aðalsteinn Pálsson, 

framkvæmdastjóri Icewear að lokum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search